Bjórhátíð Ölverk 2023
06okt(okt 6)17:0007(okt 7)00:00Bjórhátíð Ölverk 2023Þessum viðburði er lokið
Upplýsingar um viðburð
Ölverk brugghús kynnir bjórhátíð sem enginn sannur bjór-, matar-, og drykkjarsælkeri ætti að láta framhjá sér fara! Bjórhátíðin mun fara fram helgina 6. til 7. október í alvöru ylræktar gróðurhúsi sem
Upplýsingar um viðburð
Ölverk brugghús kynnir bjórhátíð sem enginn sannur bjór-, matar-, og drykkjarsælkeri ætti að láta framhjá sér fara!
Bjórhátíðin mun fara fram helgina 6. til 7. október í alvöru ylræktar gróðurhúsi sem staðsett er miðsvæðis í Hveragerði en miðasala mun hefjast fimmtudaginn 27. júlí kl 12:00 inn á tix.is
Sjá staðfesta framleiðendur hér fyrir neðan en þessi listi er ekki tæmandi og mun uppfærast reglulega fram að sjálfri bjórhátíðarhelginni:
– Bjórsetrið ( Hólar í Hjaltadal )
– Álfur brugghús ( Garðabær )
– The Brothers Brewery ( Vestmannaeyjar )
– Agla gosgerð ( Reykjavík )
– Galdur brugghús ( Hólmavík )
– Borg brugghús ( Reykjavík )
– RVK Brewing Co. ( Reykjavík )
– Jökla ( Reykjavík )
– Brennivín ( Reykjavík )
– Bruggsmiðjan Kaldi ( Árskógssandur )
– Ölverk brugghús ( Hveragerði )
– Mjólkursamsalan ( Selfoss / Reykjavík )
– Litla Brugghúsið ( Garður )
– Smiðjan brugghús ( Vík í Mýrdal )
– Lady Brewery ( Reykjavík )
– Austri brugghús ( Egilsstaðir )
– Mói brugghús ( Garðabær )
– Malbygg brugghús ( Reykjavík )
– Kjörís ( Hveragerði )
– Gæðingur brugghús ( Kópavogur )
– Ægir brugghús ( Reykjavík )
– Segull 67 ( Siglufjörður )
Dagskrá
Föstudagurinn 6. október
17:00 – 20:00 – Bjórhátíðarstemning og smakk frá framleiðendum
20:30 – 21:00+ Emmsjé Gauti
21:30 – 01:00 Danspartý ( TBA )
Laugardagurinn 7. október
16:00 – 20:00 – Bjórhátíðarstemning og smakk frá framleiðendum
20:30 – 21:00+ Tónlistaratriði ( TBA )
21:30 – 01:00 Danspartý með FM Belfast (DJ)
Aðrar hagnýtar upplýsingar
Staðsetning
Ölverk bjórhátíðin fer fram í gömlu, heitu ylræktargróðurhúsi fyrir aftan Ölverk pizza & brugghús, eða nánar tiltekið í Þelamörk 29 – Hveragerði.
Miðaverð
Helgararmband 13.900,-
Föstudagsarmband 8500,- ( takmarkað magn í boði )
Laugardagsarmband 8500,- ( takmarkað magn í boði )
Innifalið í miðaverði
Sérmerkt armband á einstaka bjór,- og tónlistarhátíð, afnot af sérmerktu Ölverk glasi, smakk á vörum frá hinum ýmsu framleiðendum, tækifæri til þess að þess að eiga skemmtilegt samtal við fólkið á bakvið vörumerkin, sérvalin tónlistaratriði og DJ danspartý.
Athugið smakkglösunum skal skila við útgang bjórhátíðarsvæðisins en hægt er að kaupa glasið fyrir 500,-.
Afhending armbanda
Fimmtudaginn 5. október verður á milli 18:00-21:00 hægt að nálgast armbönd gegn framvísun miða / kóða á Ölverk Pizza & Brugghúsi í Hveragerði.
Sjálfa bjórhátíðarhelgina, föstudaginn 6. október og laugardaginn 7. október, mun afhending armbanda fara fram við hátíðarsvæðið eða inn á veitingarstað Ölverk.
Aldurstakmark
20 ára aldurstakmark er á bjórhátíðina ( hafið skilríki meðferðis )
Gisting
Hægt er að skoða úrval gististað hér í Hveragerði inn á heimasíðu Ferðamálasamtaka Hvergerðisbæjar ( https://www.visithveragerdi.is/gisting-1 ) en einnig er að finna aðra gistikosti eins og Airbnb húsnæði, hostel, og sumarbústaði í Hveragerði, Ölfusi sem og á Selfossi.
Samgöngur
Allar upplýsingar um Strætóferðir til og frá Hveragerði er að finna inn á www.straeto.is
Bílastæði
Nóg er af bílastæðum á malarplaninu á móti bjórhátíðarsvæðinu.
Veitingasala
Veitingasala verður á bjórhátíðarsvæðinu alla helgina en einnig verður opið á veitingarstað Ölverk samkvæmt opnunartíma (eldhúsið hættir að við pöntunum kl 21:00).
Nánari upplýsingar
Spurningar og fyrirspurnir sendist á [email protected]
Meira
Tími
06.10.2023 17:00 - 07.10.2023 00:00(GMT+00:00)