Vertu memm

Viðtöl, örfréttir & frumraun

Er veitingarekstur að fara inn í gullöld?

Birting:

þann

American Style

Á heimasíðu Viðskiptablaðsins má lesa um velgengni veitingahúsa sem skila góðum hagnaði og halda mætti að veitingarekstur sé að detta inn í gullöld, en mikill hagnaður er hjá fjölmörgum veitingahúsum:

Hagnaður hjá Hlöllabátum
7 milljóna afgangur af sölu á sósuríkum samlokum og bátum hjá Hlöllabátum.  Rekstur Hlöllabáta ehf. skilaði rúmlega 7,1 milljónar króna hagnaði á síðasta ári samkvæmt ársreikningi félagsins. Það er nokkur aukning frá árinu 2011 þegar félagið skilaði tæplega 3,9 milljóna hagnaði af sölu á bátum og samlokum.
Hlöllabátar sem margir tengja við síðkvöldssnarl um helgar eru í eigu Hlöðvers Sigurðssonar. Félagið var með neikvætt eigið fé upp á rúma eina milljóna í lok síðasta árs. Ekki var neinn arður greiddur út úr félaginu á síðasta ári.

Ölstofan skilar áfram hagnaði
Sex milljóna króna hagnaður var af rekstri Ölstofu Kormáks og Skjaldar í fyrra.  Rétt rúmlega sex milljóna króna hagnaður var af rekstri Ölstofu Kormáks og Skjaldar á árinu 2012, samkvæmt ársreikningi félagsins. Það er aðeins lakari niðurstaða en árið 2011 þegar um 9 milljóna hagnaður var af rekstri kráarinnar.
Á síðasta ári voru 4,2 milljónir greiddar í arð vegna reksturs fyrra árs en árið 2011 námu arðgreiðslur 3 milljónum króna. Eignir félagsins nema alls um 48 milljónum og er eigið fé þess jákvætt um tæpar 24 milljónir.
Ölstofan hefur verið rekin af þeim Skildi Sigurjónssyni og Kormáki Geirharðssyni í um tíu ár en þeir eiga helmingshlut hvor í rekstrinum.

Matsala skilar FoodCo 200 milljónum
Móðurfélag American Style og Saffran skilaði margfalt meiri hagnaði í fyrra en árið áður.  Hagnaður veitingahúsafélagsins FoodCo nam tæpum 198 milljónum króna á árinu 2012 samanborið við 53 milljóna hagnað árið áður. Alls seldi félagið mat fyrir yfir 3 milljarða króna á síðasta ári. Sala nam rúmum 2,4 milljörðum árið 2011.  Þetta kemur fram í ársreikningi félagsins sem nýverið var skilað til ársreikningaskrár RSK.

FoodCo á og rekur matsölustaðina American Style, Eldsmiðjuna, Aktu taktu, Greifann á Akureyri, Pítuna og Saffran. Eignir félagsins á síðasta ári námu um 1,7 milljörðum króna. Skuldir voru um 950 milljónir, þar af námu langtímaskuldir um 415 milljónum.  Alls störfuðu að meðaltali 450 manns hjá félaginu á árinu 2012 og fjölgaði þeim um 20 milli ára.

† 1956-2015 | Sverrir er matreiðslumeistari, en hann lærði matreiðslu á Hótel Sögu og var við nám í hótelstjórnun í Álaborg. Hann hefur starfað mjög víða, m.a. á veitingastöðum í Englandi og Danmörku. Einnig á stöðum hér heima, m.a. Hótel Sögu, Óperu, Holliday Inn, Ránni og Þotunni í Keflavík, Fossnesti á Selfossi. Sverrir er beinskeyttur, opinskár og harðsoðinn penni.

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið