Vertu memm

Bocuse d´Or

Viktor með besta fiskréttinn – Sjáðu myndirnar hér

Birting:

þann

Viktor Örn Andrésson - Besti fiskrétturinn

Viktor Örn Andrésson lenti í fimmta sæti og hlaut sérstök verðlaun fyrir fiskrétt sinn í Evrópuforkeppni Bocuse d´Or

Eins og fram hefur komið, þá lenti Viktor Örn Andrésson í fimmta sæti í forkeppni Bocuse d´Or sem haldin var í Búdapest dagana 10. – 11. maí.

Viktor Örn Andrésson

Viktor Örn hafði fimm og hálfa klukkustund til þess að matreiða fiskrétt og kjötrétt fyrir tuttugu dómara.

Hinrik Örn Lárusson

Hinrik Örn Lárusson, aðstoðarmaður Viktors

Það var Tamás Széll frá Ungverjalandi sem sigraði Bocuse d’Or Europe en hann starfar á veitingastaðnum Onyx* í Búdapest og að launum fékk hann 12,000 evrur.  Í öðru sæti varð Christopher William Davidsen frá Noregi, en Christopher starfar á veitingastaðnum Søstrene Karlsen í Þrándheimum, en hann fékk að launum 9,000 evrur.  Í þriðja sæti var Alexander Sjögren, (starfar sjálfstætt) frá Svíþjóð og fær hann 6,000 evrur í verðlaunafé.

Tamás Széll - Bocuse d’Or Europe 2016

Tamás Széll fagnar vel og innilega sigrinum í keppninni Bocuse d’Or Europe

Viktor hlaut eftirsóttu verðlaunin: Besti fiskrétturinn, en uppistaðan í fiskréttinum var Styrja og kavíar.  Maturinn var borinn fram á fallegum viðarplötum og á glæsilegu speglafati.

Þjálfari Viktors er Sigurður Helgason, Bocuse d´Or keppandi 2015, og aðstoðarmaður er Hinrik Örn Lárusson.  Hvert þátttökuland á fulltrúa í dómarateymi Bocuse d´Or og dæmdi Sturla Birgisson fyrir hönd Bocuse d´Or akademíunnar á Íslandi.

Sturla Birgisson

Sturla Birgisson (F.v.) dómari fyrir hönd Bocuse d´Or akademíunnar á Íslandi

Keppnin Bocuse d‘Or hefur verið haldin síðan 1987 en fyrsti íslenski keppandinn tók þátt árið 1999. Það var Sturla Birgisson og náði hann fimmta sæti. Síðan þá hafa Íslendingar ávallt verið í níu efstu sætunum en bestum árangri náði Hákon Már Örvarsson árið 2001 þegar hann vann til bronsverðlauna.

Íslensku réttirnir

Viktor Örn Andrésson

Besti fiskrétturinn

Viktor Örn Andrésson

Kjötrétturinn

Viktor Örn Andrésson

Kjötrétturinn

Það voru 20 þjóðir sem kepptu og 11 komust áfram í sjálfa aðal keppnina sem haldin verður í þrítugasta sinn í Lyon í Frakklandi 24. og 25. janúar 2017, en þau voru:

Bocuse d’Or Europe 2016

Myndir af öllum keppnisréttunum

Tamás Széll frá Ungverjalandi sigraði Bocuse d’Or Europe 2016

Tamás Széll frá Ungverjalandi sigraði Bocuse d’Or Europe 2016

Myndir: Etienne Heimermann

Fleira tengt efni:

[feed url=“https://veitingageirinn.is/category/bocuse-dor/feed/“ number=“8″ ]

 

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Í dag starfar Smári hjá Tónaflóði heimasíðugerð. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið