Vertu memm

Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel

Spennandi tímar framundan hjá Fosshótel keðjunni | Ný hótel og veitingastaðir

Birting:

þann

Það eru spennandi tímar framundan hjá Fosshótel keðjunni sem stækkar með opnun á nýjum hótelum og miklar framkvæmdir standa yfir er snúa að endurbótum og stækkunum á þeim hótelum sem fyrir eru.

Fosshótel Austfirðir

Fosshótel Austfirðir

Nýopnað Fosshótel Núpar

Fosshótel Núpar var opnað 1. mars síðastliðinn. Á hótelinu eru 60 herbergi og veitingastaður sem tekur allt að 90 manns í sæti. Hótelið er  við hringveginn um 25 km austur af Kirkjubæjarklaustri, í miðju eystra Eldhrauni með stórkostlegu útsýni yfir Vatnajökul og Lómagnúp. Fosshótel Núpar er skemmtileg viðbót við Fosshótel keðjuna og hefur verið mjög vel tekið. Hótelið verður opið allt árið.

Myndir og nánari upplýsingar um Fosshótel Núpar er að finna á vef fosshotel.is hér.

Fosshótel Vatnajökli

Fosshótel Vatnajökli

Endurbætur og stækkun á Fosshótel Vatnajökli

Miklar endurbætur hafa átt sér stað undanfarið á Fosshótel Vatnajökli. Hótelið hefur allt verið endurnýjað, 40 herbergjum bætt við og eru nú 66 herbergi á hótelinu. Hótelið býður upp á góða aðstöðu fyrir ráðstefnur og hvataferðir þar sem auðvelt er að sameina vinnu og leik í stórbrotnu umhverfi.

Fundarsalurinn tekur allt að 120 manns í sæti og hefur allan nauðsynlegan tækjabúnað fyrir fundi og kynningar. Á hótelinu verða eftirfarandi herbergja tegundir, standard (single, double og twin), deluxe, samliggjandi fjölskylduherbergi og svítur.

Hótelið er um 2 km frá hringveginum og í 15 mínútna akstursfjarlægð frá Höfn í Hornafirði.

Myndir af framkvæmdum, tölvugerðar myndir af því hvernig hótelið mun líta út og nánari upplýsingar um Fosshótel Vatnajökul er að finna á vef fosshotel.is hér.

Fosshótel Austfirðir

Fosshótel Austfirðir

Nýtt hótel, Fosshótel Austfirðir

Fosshótel Austfirðir er nýtt þriggja stjörnu hótel á Fáskrúðsfirði.  Á hótelinu verða til að  byrja með 26 herbergi, en stækkun er fyrirhuguð. Húsið er merkilegt fyrir margra hluta sakir en í því var franski spítalinn um árabil. Húsnæðið hefur verið endurgert og sýning sett upp um franska sjómenn á svæðinu.

Við enduruppbyggingu húsanna hefur verið lögð áhersla á að endurnýta byggingarefni eins og hægt er. Hótelið verður býður upp á standard og superior herbergi, en mikil áhersla er lögð á að skapa þægilegt og heimilislegt andrúmsloft, í takt við anda hússins.

Á hótelinu verður glæsilegur veitingastaður L’Abri, en nafnið þýðir skjól. Á veitingastaðnum L´Abri mun hinn franski matreiðslumaður Isaac Basse ráða ríkjum. Áhersla er lögð á ferskt íslenskt hráefni, eldað á franska vísu.

Myndir og nánari upplýsingar um Fosshótel Austfirðir er að finna á vef fosshotel.is hér.

Fosshótel Reykjavík við Höfðatorg (minni mynd niðri til hægri í horni sýnir staðsetninguna)

Fosshótel Reykjavík við Höfðatorg (minni mynd niðri til hægri í horni sýnir staðsetninguna)

Nýtt hótel, Fosshótel Reykjavík við Höfðatorg

Fosshótel Reykjavík, verður opnað sumarið 2015, þriggja stjörnu plús, stærsta hótel landsins á Höfðatorgi í Reykjavík. Á hótelinu verða 320 herbergi, 16 hæðir og þar af eru 9 hæðir inndregnar og snúa að Bríetartúni (áður Skúlatún). Á efstu hæð hótelsins verða 7 svítur og 3 fyrsta flokks fundarsalir á annarri hæð.

Veitingastaðurinn Haust á Fosshótel Reykjavík er hannaður af Leifi Welding og mun taka 200 manns í sæti. Á jarðhæð hótelsins verður Íslenska Brugghúsið (Beer Garden), þar sem meðal annars verður boðið upp á einstakt úrval af íslenskum bjór. Á Fosshótel Reykjavík verður bæði líkamsrækt og Spa, líkamsræktarsalurinn verður aðgengilegur gestum hótelsins allan sólarhringinn og geta gestir notið heitra og kaldra lauga, sauna, hvíldar og fjölbreyttra meðferða.

Myndir og nánari upplýsingar um Fosshótel Reykjavík við Höfðatorg er að finna á vef fosshotel.is hér.

Fosshótel Húsavík

Fosshótel Húsavík

Endurbætur og framkvæmdir á Fosshótel Húsavík

Endurbætur hafa átt sér stað á Fosshótel Húsavík, þar sem öll rúm hafa verið endurnýjuð í eldri hluta hótelsins ásamt öðrum lagfæringun. Frekari framkvæmdir eru á döfinni þar sem viðbygging ásamt tengihúsi verður byggð  við hótelið og herbergjum fjölgað úr 70 í 114.

Hótelið verður allt hið glæsilegasta, 3 fundarsalir ásamt stórum veislu- og fundarsal auk líkamsræktaraðstöðu. Stefnt er á að framkvæmdum ljúki fyrir sumarið 2015 og verður þá haldið áfram við endurnýjun eldri hluta hótelsins.

Myndir og nánari upplýsingar um Fosshótel Húsavík er að finna á vef fosshotel.is hér.

 

Myndir: fosshotel.is

/Smári

twitter og instagram icon

 

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Í dag starfar Smári hjá Tónaflóði heimasíðugerð. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið