Vertu memm

Íslandsmót barþjóna

Reykjavík Cocktail Weekend 2015 haldin dagana 4. – 8. febrúar

Birting:

þann

Reykjavík Cocktail Weekend

Barþjónaklúbbur íslands stendur fyrir hinni árlegu kokteilhátíð „Reykjavík Cocktail Weekend“ í samstarfi við helstu veitinga- og skemmtistaði í Reykjavík dagana 4. – 8. febrúar n.k.  Það var árið 1963 sem að Barþjónaklúbbur Íslands var stofnaður en árið á eftir hóf klúbburinn að etja saman barþjónum landsins í kokteilgerð og hefur vinningshafi ávallt hlotið nafnbótina Íslandsmeistari barþjóna og keppt fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti barþjóna.

Hátíðin hefst miðvikudaginn 4. febrúar og stendur til sunnudagsins 8. febrúar, þar sem henni líkur með úrslitakeppni í Íslandsmóti barþjóna og keppni milli veitingastaða í kokteilgerð í Gamla bíó.

Undankeppnir fara fram fimmtudaginn 5. febrúar og opnar Gamla bíó  kl 19:00.

Um að gera að taka göngutúr um miðbæinn
Allir helstu umboðsaðilar áfengra drykkja verða með kynningu á sínum vörum á meðan á keppni stendur og von er á góðri stemmningu í kringum viðburðina. Samstarfsaðilar Reykjavík Cocktail Weekend munu bjóða upp á sérstakan kokteilseðil sem samanstendur af 5 kokteilum á tilboðsverði dagana 4. – 8. febrúar til klukkan 23.00 öll kvöldin og því um að gera að taka göngutúr um miðbæinn og skilja bílinn eftir því fjöldi góðra drykkja verða á boðstólnum.

Dómnefnd skipuð af Barþjónaklúbbi Íslands mun ganga á milli og smakka valda drykki af kokteilseðlum þáttökustaðanna og velja þrjá bestu drykkina sem keppa svo til úrslita á sunnudagskvöldið í Gamla bíó, vinningsdrykkurinn hlýtur nafngiftina Reykjavík Cocktail Weekend drykkurinn 2015.

Master class – erlendir sérfræðingar
Einnig býður Barþjónaklúbburinn upp á svokallað  „Master Class“ á Center Hotel Plaza laugardaginn 7. febrúar milli kl. 14 & 19, en þar býðst gestum að smakka nokkrar tegundir af viskí, koníak og romm ásamt því að njóta fróðleiks frá þeim sem best til þekkja frá hverju umboði fyrir sig.

Fyrirlestrar verða í boði á þessum tíma og mun fjölbreytileikinn ráða þar ríkjum, þar sem að erlendir gestafyrirlesarar koma og fræða okkur um vínheiminn.

Nánari upplýsingar á heimasíðu Barþjónaklúbbs Íslands hér.

Fleira tengt efni:
[feed url=“https://veitingageirinn.is/category/cocktail_weekend/feed/“ number=“8″ ]

 

/Smári

twitter og instagram icon

 

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Í dag starfar Smári hjá Tónaflóði heimasíðugerð. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið