Vertu memm

Smári Valtýr Sæbjörnsson

Pizzan hennar Hrefnu Sætran bætir líf útigangsfólks

Birting:

þann

Á myndinni má sjá Birgi Örn Birgisson, framkvæmdastjóra Domino's Pizza, Þórunni Brandsdóttur f.h. minningarsjóðs Lofts Gunnarssonar og Hrefnu Sætran, meistarakokk

Á myndinni má sjá Birgi Örn Birgisson, framkvæmdastjóra Domino’s Pizza, Þórunni Brandsdóttur f.h. minningarsjóðs Lofts Gunnarssonar og Hrefnu Sætran, meistarakokk

Miklar vinsældir gúrmet-góðgerðarpizzu úr smiðju Hrefnu Sætran meistarakokks munu koma útigangsmönnum í Reykjavík til góða á næstunni en þeir munu fá nýja skápa, ný rúm og sængurföt og ýmis raftæki, húsgögn og húsmuni inn á gistiskýli og athvörf sín í borginni.

Það var veitingakeðjan Domino’s sem fékk Hrefnu Sætran til að búa til uppskrift að góðgerðarpizzunni en allt söluandvirði pizzurnnar rann í minningarsjóð Lofts Gunnarssonar. Það var móðir Lofts, Þórunn Brandsdóttir, sem veitti upphæðinni móttöku úr hendi Hrefnu og Birgis Arnar Birgissonar, framkvæmdastjóra Domino’s á Íslandi.

  • Íslendingar keyptu gúrmet pizzur fyrir rúmar fjórar milljónir á fjórum dögum í byrjun október
  • Allt andvirði sölunnar rennur í sjóð sem styrkir úrræði fyrir útigangsfólk
  • Kaupa rúm, skápa, raftæki og aðra húsmuni inn í fjögur athvörf í borginni
Dominos - Góðgerðarpizza

Góðgerðarpizzan úr smiðju Hrefnu Sætran

Samtals söfnuðust 4.114.137 kr. Fjármunirnir munu nýtast við kaup á 21 rúmi og sængurbúnaði sem mun skiptast á þrjá staði, Dagsetrið, úrræði fyrir heimilislausa á Miklubraut og smáhýsin á Granda. Einnig verða keyptir skápar í gistiskýlið fyrir heimilislausa karla, en þess má geta að það flytur inn í nýtt húsnæði í dag, mánudag.

Ennfremur mun sjóðurinn kaupa húsgögn, raftæki og aðra muni sem bæta lífsgæði fólks á stöðum sem þjónusta útigangsfólk.

Uppskriftin innihélt hægeldað svínakjöt, tvenns konar lauk og BBQ sósu.  Góðgerðarpizzan var seld dagana 6.-10. október og sló heldur betur í gegn. Áleggið sem Hrefna Sætran valdi á pizzuna var hægeldað kryddlegið svínakjöt, beikonkurl, cheddarostur, lauku, rauðlaukur og svo var pizzan þakin BBQ sósu. Kjötvinnslan Ali og Mjólkursamsalan gáfu hráefni sem notað var í pizzurnar.

Þess má til gamans geta að vegna þess hve pizzan seldist vel þessa fjóra daga, og vegna fjölda áskoranna, þá hefur Domino’s ákveðið að bæta henni á matseðilinn hjá sér til framtíðar.

 

Myndir: aðsendar

/Smári

twitter og instagram icon

 

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Í dag starfar Smári hjá Tónaflóði heimasíðugerð. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið