Vertu memm

Smári Valtýr Sæbjörnsson

Orri Páll og Alexandre Lampert kepptu fyrir íslands hönd í Nikka Perfect Serve barþjónakeppninni í Noregi

Birting:

þann

Alexandre Lampert á Slippbarnum og Orri Páll Vilhjálmsson veitingastjóri á veitingahúsinu Apotek Restaurant kepptu nú á dögunum fyrir íslands hönd í Nikka Perfect Serve barþjónakeppninni í Noregi.

Alexander að ljúka við sinn drykk African Kiss

Alexander að ljúka við sinn drykk African Kiss í Amarula kokteilkeppninni sem haldin var hér á Íslandi 27. október s.l.

Alexandre Lampert

Alexandre Lampert kemur frá Gognac héraðinu í Frakklandi. Hann er ættaður frá borginni Libourne sem er í suðvestur Frakklandi sem telst vera höfuðborg vínframleiðslu í norður Gironde.  Alexandre er barþjónn á Slippbarnum og hefur unnið til fjölda verðlaunasæta í barþjónakeppnum erlendis og keppt hérlendis með góðum árangri og er í hópi einn af færustu barþjóna samtímans.

Amarula kokteilkeppni 2014

Orri Páll keppir hér í Amarula kokteilkeppninni sem haldin var hér á Íslandi 27. október síðastliðinn

Orri Páll Vilhjálmsson

Orri hefur langa reynslu í veitingageiranum og hefur meðal annars unnið sem rekstrarstjóri á Cafe Paris og veitingastjóri á Sushi Samba og nú á Apotek Restaurant.  Orri er enginn nýgræðingur í keppnum sem þessum en hann vann Hot Toddy keppnina hérlendis 2013.

Nikka Perfect Serve barþjónakeppnin

Keppnin var haldin af Nikka Whiskey og er frábrugðinn hefðbundnum kokteilkeppnum að því leiti að einnig er keppt í gestrisni.  Byggir keppnin á japönsku heimspekinni Ichi-go og Ichi-e sem byggir á því að hver einasta snerting við viðskiptavininn er einstök og er ekki hægt að endurtaka og því verður alltaf að stefna að fullkomnum.

Dómarnir í keppninni eru þrír og þurfa keppendur ekki aðeins að blanda sinn “signature“ drykk,  þeir þurfa líka að spjalla við dómarana og afgreiða þá með kokteil og Whisky sem hentar viðkomandi á þeirri stundu og rökstyðja val sitt.

Alexandre og Orri Páll lentu í 2. og 3. sæti, en keppnin er haldin í 12 evrópulöndum og sigurvegarar komast áfram, en það var Jørgen Thormøhlen frá Noregi sem sigraði keppnina í Noregi og tryggði sér sæti í lokakeppnina sem haldin verður 1. desember næstkomandi í La Réunin Island.

 

Mynd: Björn Blöndal

/Smári

 

 

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Í dag starfar Smári hjá Tónaflóði heimasíðugerð. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið