Vertu memm

Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel

Olsen Olsen í Reykjanesbæ flytur

Birting:

þann

Olsen Olsen var við Hafnargötu 17 í 15 ár

Olsen Olsen var við Hafnargötu 17 í 15 ár

Það gengur bara ágætlega hjá okkur en auðvitað hafa verið sviptingar eins og gengur. Við erum ánægð með að vera komin á þennan stað, aðstaða starfsfólks er miklu betri og þá eru helmingi fleiri sæti en á gamla staðnum

, sagði Gunnar Friðriksson matreiðslumeistari í samtali við Víkurfréttir en hann á og rekur veitingastaðinn Olsen Olsen með Bergljótu Grímsdóttur, konu sinni.  Olsen Olsen býður upp á hamborgara, lamba-, og nautasteik, djúpsteikta ýsu í orly, Olsen brauð með allskyns fyllingum svo fátt eitt sé nefnt.

Gunnar er ekki ókunnur á þessum gamla verslunarstað við Hafnargötu 62 en þar hefur verið starfrækt verslun eða þjónusta óslitið í tæpa sjö áratugi. Ekkert annað hús á lengri sögu í verslun og þjónustu í Reykjanesbæ. Eftir áratuga rekstur Kaupfélags Suðurnesja í plássinu opnaði Axel Jónsson veitingastaðinn Langbest árið 1986. Ári síðar keyptu Gunnar og Bergljót veitingastaðinn og ráku hann í áratug.

Olsen Olsen við Hafnargötu 62, þar sem veitingastaðurinn Langbest var áður til húsa, en Langbest lokaði fyrir stuttu og fluttu alla starfsemi Langbest á Ásbrú.

Olsen Olsen við Hafnargötu 62, þar sem veitingastaðurinn Langbest var áður til húsa, en Langbest lokaði fyrir stuttu og fluttu alla starfsemi Langbest á Ásbrú.

Ingólfur Karlsson og Helena Guðjónsdóttir tóku við keflinu á Langbest árið 1987 þar til þau lokuðu fyrir stuttu og fluttu alla starfsemi Langbest á Ásbrú. Gunnar starfaði á Langbest og þar á undan á veitingastaðnum Glóðinni í sama húsi. Síðustu árin hafa þau hjónin rekið Olsen Olsen við Hafnargötu 17. Gunnar segir að þegar honum hafi staðið til boða að færa staðinn hafi hann strax fundist það spennandi hugmynd og svo ákveðið að láta verða af því. Hann var sáttur við gang mála þegar VF leit við hjá honum í opnunarteiti á nýja staðnum.

Nánari umfjöllun og myndir frá opnun Olsen Olsen á vef Víkurfrétta hér.

 

Myndir: Smári

twitter og instagram icon

 

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Í dag starfar Smári hjá Tónaflóði heimasíðugerð. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið