Vertu memm

Nemendur & nemakeppni

Norræna Nemakeppnin haldin á Íslandi – Dagana 8. og 9. apríl

Birting:

þann

Norræna Nemakeppnin er að þessu sinni haldin hér á landi dagana 8. og 9. apríl nk. í Hótel og matvælaskólanum í Kópavogi. Samtals taka fjórir nemendur þátt í keppninni fyrir hönd Íslands, tveir framreiðslu- og tveir matreiðslunemar.

Til landsins koma samsvarandi keppnispör í matreiðslu- og framreiðslu frá Finnland, Noregi, Svíþjóð, Danmörku til þess að taka þátt í þessari keppni, sem er alla jafna ansi hörð og umfangsmikil en þetta mun vera í 30 árið sem nemakeppnin er haldin á milli landanna. það er SAF, MATVÍS, Hótel- og matvælaskólinn í Kópavogi og IÐAN fræðslusetur sem standa að keppninni.

Íslensku keppendurnir í framreiðslu

Íslandsmót matreiðslu- og framreiðslunema 2015 - Berglind Kristjánsdóttir

Berglind Kristjánsdóttir

Íslandsmót matreiðslu- og framreiðslunema 2015 - Leó Snæfeld Pálsson

Leó Snæfeld Pálsson

Íslensku keppendur eru í framreiðslu þau Leó Snæfeld Pálsson nemi á Bláa Lóninu meistari hans er Kristján Nói Sæmundsson og Berglind Kristjánsdóttir nemi á Hilton VOX, meistari hennar er Gígja Magnúsdóttir. Þjálfari nemanna er Ana Marta Montes Lage framreiðslumaður á Icelandair Natura.

Íslensku keppendurnir í matreiðslu

Íslandsmót matreiðslu- og framreiðslunema 2015

Haraldur Geir Hafsteinsson

Norræna nemakeppnin 2016 - Þorsteinn Geir Kristinsson

Þorsteinn Geir Kristinsson
Mynd: Jón Svavarsson / MOTIV

Í matreiðslu keppa þeir Haraldur Geir Hafsteinsson nemi á Sjávargrillinu meistari hans er Gústav Axel Gunnlaugsson og Þorsteinn Geir Kristinsson nemi á Fiskfélaginu, meistari hans er Lárus Gunnarsson.. Þjálfari nemanna í matreiðslu er Sigurður Daði Friðriksson matreiðslumeistari og kennari í Hótel- og matvælaskólanum.

Ísland unnið til gull-, silfur- og bronsverðlauna

Í Norrænu nemakeppninni taka samtals 20 nemar þátt í keppni um titilinn matreiðslu- og framreiðslunemar Norðurlandanna. Undanfarin ár hafa íslenskir matreiðslunemar unnið til gull-, silfur- og bronsverðlauna og framreiðslunemarnir hafa unnið til silfur- og bronsverðlauna. Hráefni í keppni matreiðslunemanna verður íslenskt sjávarfang og íslenskar landbúnaðarafurðir.

Yfirdómarar í keppninni eru þeir Ragnar Wessman í matreiðslu og Bárður Guðlaugsson fyrir framreiðsluna.

Keppnin stendur yfir í tvo daga:

Á föstudeginum er verkefnið:

Fagpróf í matreiðslu og framreiðslu.

Verkefni í matreiðslunemanna:

  • Canapé eða fingramatur fyrir tólf.
  • Heitur eða kaldur grænmetisréttur fyrir sex.
  • Flaka fisk eða úrbeina kjöt og útbúa soð

Þau hafa 180 mínútur til þess að vinna verkefnið.

Verkefni framreiðslunemanna eru:

  • Para vín og drykki við fimm rétta matseðil
  • Dekka upp borð fyrir fimm rétta maðseðil með borðskreytingu og sérvettubrotum.
  • Vínsmakk, sex vín eru prófuð og greind.
  • Barinn, þau blanda sex drykki, áfenga og óáfenga.

Á laugardeginum er verkefnið:

Matreiðslu og framreiðslunemar vinna saman að matseðli dagsins sem er fjögurra rétta seðill fyrir 12. Hráefnin eru í leyndarkörfu (Mystery basket).

Að auki framreiða framreiðslunemarnir osta sem fimmta rétt.  Framreiðslunemarnir bera réttina fram á diskum og fati þar sem mismunandi framreiðsluaðferðum er beitt.  Framreiðslunemarnir velja vín með matseðlinum og umhella, þau dekka upp borð fyrir sex með tilheyrandi borðskreytingu og sérvettum. Flambera fyrir gesti og skera fyrir.

Þetta verður hörku keppni og veitingageirinn.is kemur til með að gera góð skil á keppninni.

 

Myndir: Ólafur Jónsson, sviðsstjóri matvæla- og veitingasviðs

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Í dag starfar Smári hjá Tónaflóði heimasíðugerð. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið