Vertu memm

Nemendur & nemakeppni

NNK 2015: Seinni keppnisdegi lokið – Strákarnir stóðu sig frábærlega

Birting:

þann

Norræna nemakeppnin 2015

Síðustu tveir dagar hafa verið býsna strembnir hjá íslenska liðinu.
F.v. Karl Óskar Smárason, Arnar Ingi Gunnarsson, Jón Bjarni Óskarsson og Alfreð Ingvar Gústafsson.

Í dag fór fram seinni keppnisdagur í Norrænu nemakeppninni þar sem keppendur í framreiðslu þeir Jón Bjarni Óskarsson nemi á Natura og Alfreð Ingvar Gústafsson nemi í Keiluhöllinni og keppendur í matreiðslu þeir Karl Óskar Smárason nemi á Hilton VOX og Arnar Ingi Gunnarsson nemi á Reykjavík Hótel Marína kepptu fyrir hönd Ísland.

Keppnisfyrirkomulagið var leyndarkarfa hjá matreiðslunemum sem kepptu með eftirfarandi fimm rétta matseðil:

Forréttur:
Fried lobster with fennel and mussel sauce, fennel  parasienne, baked carrots and leek.

Milliréttur:
Consommé Royal, with fried minced meat, croutons and herbs

Aðalréttur:
Medallion of Venison with sautéed mushroom, onion purre, stuffed potato and brussels sprouts, meat glacé with bacon

Ostar:
Valdnir af þjónanemum og afgreiddir inn í sal.

Eftirréttur (á disk):
Crepe suzette with vanilla parfait, orange and raspberry coulis.

Norræna nemakeppnin 2015

Jón Bjarni Óskarsson keppir hér á barnum

Í framreiðslunni settu þeir upp hátíðarborð fyrir sex gesti og framreiddu fimm rétti, völdu vín með matseðlinum, blönduðu drykki og blindsmökkuðu sex vín.  Kepptu á barnum og eins í vínþekkingu.

Þetta var hörkudagur og stóðu nemarnir sig frábærlega vel, en úrslit verða kynnt í kvöld.

Fleiri myndir eru væntanlegar og verða birtar síðar hér á veitingageirinn.is.

Fleira tengt efni:

[feed url=“https://veitingageirinn.is/tag/norraena-nemakeppnin/feed/“ number=“5″ ]

 

Myndir: Ólafur Jónsson, sviðsstjóri Matvæla- og veitingasvið IÐUNNAR

/Smári

 

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Í dag starfar Smári hjá Tónaflóði heimasíðugerð. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið