Vertu memm

Nemendur & nemakeppni

Myndir frá sveinsprófi í bakaraiðn

Birting:

þann

Sveinspróf í bakaraiðn var haldið í  Hótel- og matvælaskólanum í Kópavogi dagana 19. og 20. maí 2014. Var það samdóma álit fagmanna að prófin í ár væru með allra besta móti. Nemendurnir voru að þessi sinni fjórir og koma frá eftirfarandi bakaríum:

Nafn nema Nafn meistara Nafn fyrirtæki
Bettý Snæfeld Sigurðardóttir Birgir Páll Jónsson Nýja kökuhúsið ehf
Dörthe Zenker Almar Þór Þorgeirsson Almar bakari
Róbert Ómarsson Ómar Ásgeirsson Kökuval ehf
Stefán Gaukur Rafnsson Kristján P Sigmundsson Sveinsbakarí ehf

 

Prófverkefnið í ár var:

Prófið hófst á skriflegu prófi í 40 mínútur
2 tegundir af matbrauði – 12 stk. af tegund
4 tegundir af smábrauðum – Alls 120 stk.
3 tegundir af stórum vínarbrauðum og
3 tegundir af sérbökuðum vínarbrauðum
10 stk. Sandkökur
Blautdeig – 3 tegundir
Rúlluterta með smjörkremi
Terta að eigin vali
10 hringja Kransakökustrýta og kransakonfekt.

Auk þess er skilað vinnumöppu, og tillit tekið til frágangs og vinnuhraða.

Nemarnir höfðu 9 tíma til þess að klára prófið og stilla því upp, 3 klukkutíma og 40 mínútur tíma fyrri daginn og 6 klukkutíma þann seinni.
Nú í ár fagnar bakarastéttin á Íslandi nokkrum merkum áföngum. Fyrst ber að nefna að í ár eru 180 ár frá komu fyrsta menntaða bakarameistarans sem var Tönnies Daníel Bernhöfts. Stofnaði hann Bernhöftsbakarí sem tók til starfa þann 25. September 1834 og er elsta starfandi fyrirtæki landsins.

Þá eru 130 ár frá því að fyrsti íslenski bakaraneminn Grímur Ólafsson þreytti sveinspróf í bakaraiðn. Grímur lærði bakaraiðn hjá Jörgen Emil Jensen sem rak bakarí í Fischersundi og oft nefnt „norska bakaríið“. Svo eru 110 ár frá því að fyrstu konditorarnir komu til starfa á Íslandi.

Bjóðum við nýja sveina hjartanlega velkomna í hóp fagmanna og óskum þeim innilega til hamingju með árangurinn.

Sigurður Már er bæði bakara- og konditormeistari að mennt. Bakaraiðn lærði Sigurður í fjölskyldufyrirtæki sínu Bernhöftsbakarí, en konditorifagið í Chemnitz í Þýskalandi. Sigurður Már er formaður Konditorsambands Íslands og meðlimur í þýska Konditorsambandinu. Hægt er að hafa samband við Sigurð í netfanginu [email protected]

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið