Vertu memm

Uncategorized @is

Matreiðslumaður – Landsnet

Birting:

þann

Landsnet

Landsnet leitar að matreiðslumanni eða starfsmanni með mikla reynslu úr atvinnueldhúsi til starfa í mötuneyti Landsnets hf. Viðkomandi heyrir undir yfirmann mötuneytis.

Áhersla er lögð á að mötuneytið bjóði starfsfólki upp á fjölbreyttan og hollan mat sem eldaður á staðnum og frá grunni.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Matseld og framleiðsla matar í mötuneyti
  • Aðstoð við matseðlagerð
  • Frágangur og uppvask í samvinnu við teymi mötuneytis
  • Vinnur markvisst að auknum gæðum þeirra þjónustu sem mötuneytið veitir starfsmönnum
  • Vinnur að stefnu fyrirtækisins í mötuneytismálum
  • Umsjón með rekstri mötuneytis í fjarveru yfirmanns
  • Gætir að hagkvæmni í rekstri mötuneytis

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Sveinspróf í matreiðslu
  • Reynsla af vinnu í atvinnueldhúsi er skilyrði
  • Hugmyndaauðgi og framsækni í matargerð
  • Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Góð kostnaðarvitund
  • Snyrtimennska í fyrirrúmi
  • Áhugi á hollustu og næringu
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

Umsóknarfrestur er til og með 4. janúar 2015. Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið á heimsíðu Capacent Ráðninga, www.capacent.is. Umsóknum þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Nánari upplýsingar veita Helga Jónsdóttir ([email protected]) og Elín Friðjónsdóttir ([email protected]) hjá Capacent ráðningum.

Um Landsnet
Landsnet hf. annast flutning raforku á Íslandi og stýrir uppbyggingu flutningskerfisins. Landsnet stýrir jafnframt raforkukerfi landsins og tengir þannig saman framleiðendur og notendur raforku. Landsnet er ábyrgt og framsækið þjónustufyrirtæki með öfluga liðsheild, sterka samfélagsvitund og í fremstu röð í alþjóðlegum samanburði. Landsnet leggur áherslu á að vera eftirsóknarverður vinnustaður.

 

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Í dag starfar Smári hjá Tónaflóði heimasíðugerð. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Auglýsingapláss

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið