Vertu memm

Keppni

Matreiðslumaður ársins 2014

Birting:

þann

Logo Klúbbur Matreiðslumeistara KMKeppnin um matreiðslumann ársins 2014 verður haldin í Hótel og Matvælaskólanum í Kópavogi helgina 19 -21 september næstkomandi. Keppnin verður með svipuðu sniði og undanfarin ár. Forkeppni þar sem keppendur mega koma með eins mikið forunnið/eldað og þeir vilja. Keppendur fá klukkutíma í undirbúning og svo 50 mín í skil á næsta rétt.

Fimm efstu sætin úr forkeppninni keppa svo til úrslita og verður keppnisfyrirkomulagið leynikarfa „Mistery Basket“  sem kynnt verður daginn fyrir úrslitakeppnina. Keppendur hafa 5klst.  í undirbúning og 50 mín. á milli rétta. Ekki verður leyfilegt að hafa neitt hráefni með í úrslitin. Keppendur í úrslitum mega hafa með sér aðstoðarmann 23 ára eða yngri og má hann ekki hafa lokið sveinsprófi. Ekki verður heimilt að hafa með sér aðstoðarmann í forkeppnina.

Dæmt verður eftir alþjóðareglum  World Chefs, sjá nánar hér.

Forkeppni 19 september 2014

  • Keppendur elda forrétt og aðalrétt fyrir 10 manns.
  • Foréttur: Skötuselskinn, humar og fennika
  • Aðalréttur: Kálfahryggvöðvi, kálfabris og hnúðkál

Úrslit 21. september 2014

  • Leynikarfa sem verður kynnt verður keppendum laugardaginn 20.sept.  á keppnisstað

Skráningu lýkur 12 sept. 2014 og verður dómarafundur haldin sama dag í MK kl 16.00. skráning fer fram á [email protected] eða í meðfylgjandi pdf_icon eyðublaði hér.

Keppnisgjald 30.000kr. greiðist inn á reikning Klúbb Matreiðslumeistara,  gjaldið verður að greiðast áður en skráningarfrestur rennur út.

Kt: 571091-1199  Banki: 0513-26-406407. Þegar keppnisgjald er greitt er mikilvægt að fram komi  fyrir hvern greitt sé og staðfesting send á netfangið [email protected]

Fyrir hönd KM
Keppnisnefnd KM

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Í dag starfar Smári hjá Tónaflóði heimasíðugerð. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið