Vertu memm

Nemendur & nemakeppni

Ísland komst ekki í verðlaunasæti – Danmörk tvöfaldur sigurvegari

Birting:

þann

Norræna nemakeppnin 2015

Síðustu tveir dagar hafa verið býsna strembnir hjá íslenska liðinu.
F.v. Karl Óskar Smárason, Arnar Ingi Gunnarsson, Jón Bjarni Óskarsson og Alfreð Ingvar Gústafsson.

Í gær og í dag fór fram Norræna nemakeppnin í Þrándheimi í Noregi, mjög skemmtileg og jöfn keppni.  Fyrir hönd Ísland kepptu í framreiðslu þeir Jón Bjarni Óskarsson nemi á Natura og Alfreð Ingvar Gústafsson nemi í Keiluhöllinni og í matreiðslu þeir Karl Óskar Smárason nemi á Hilton VOX og Arnar Ingi Gunnarsson nemi á Reykjavík Hótel Marína.

Þjálfarar eru þeir Hallgrímur Sæmundsson framreiðslumaður og Sigurður Daði Friðriksson matreiðslumaður.

Úrslit urðu eftirfarandi:

Í framreiðslu:

1. sæti – Danmörk

2. sæti – Svíþjóð

3. sæti – Svíþjóð

4-5 sæti: Ísland og Finnland

Í matreiðslu:

1. sæti – Danmörk

2. sæti – Svíþjóð

3. sæti – Noregur

4-5 sæti: Ísland og Finnland

Föstudagurinn 17. apríl 2015
Fyrri keppnisdagur fór þannig fram að framreiðslunemar lögðu á þriggja manna borð ásamt því að framreiða tveggja rétta kvöldverð sem að matreiðslunemarnir höfðu tekið nokkrar æfingar hér á Íslandi.  Í tveggja rétta kvöldverðinum var boðið upp á kálfakjöt „Cordon Bleu“, með Hasselback kartöflum, bakaðri gulrót, pikkluðum lauk, fylltu blómkáli og grænertumauki.  Í eftirrétt var Appelsínu súkkulaðimús með epla krapís, smjörköku, hindberja sósu og appelsínulaufi.

Laugardagurinn 18. apríl 2015
Seinni keppnisdagur var allt á huldu þar sem nemendur fengu að vita samdægurs hvaða hráefni ætti að nota og útbúa matseðil samkvæmt því.

Í framreiðslunni settu þeir Jón Bjarni og Alfreð Ingvar upp hátíðarborð fyrir sex gesti og framreiddu fimm rétti, völdu vín með matseðlinum, blönduðu drykki og blindsmökkuðu sex vín.  Kepptu á barnum og eins í vínþekkingu.

Matreiðslunemarnir Karl Óskar og Arnar Ingi buðu upp á eftirfarandi matseðil;

Forréttur:
Steiktur humar með fenníku og kræklingasósu, fenníku „parasienne, bakaða gulrót og blaðlauk.

Milliréttur:
Nautakjötseyði „Royal“, með nautakjöti, stökkum brauðteningum og kryddjurtir.

Aðalréttur:
Medalíu hjartarkjöt með steiktum sveppum, laukmauki, fylltum kartöflum, rósakál og nautagljáa með beikoni.

Ostar:
Valdnir af þjónanemum og afgreiddir inn í sal.

Eftirréttur:
crêpe suzette (pönnukaka sem borin er fram logandi) með vanilluís, appelsínu og hindberjasósu.

Fleira tengt efni:

[feed url=“https://veitingageirinn.is/tag/norraena-nemakeppnin/feed/“ number=“6″ ]

 

Mynd: Ólafur Jónsson, sviðsstjóri Matvæla- og veitingasvið IÐUNNAR

/Smári

 

 

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Í dag starfar Smári hjá Tónaflóði heimasíðugerð. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið