Vertu memm

Sverrir Halldórsson

Heimsókn í mötuneyti Tryggingarmiðstöðvarinnar (TM)

Birting:

þann

Tryggingamiðstöðin - Mötuneyti - Jóhann Sigurðsson

Það er staðsett á 4. hæð í aðalstöðvum TM í Síðumúla 24 í dag og er yfirmatreiðslumaður þess Jóhann Sigurðsson.

Jóhann lærði á Hótel Blönduós og kláraði árið 1988, síðasta árið vann hann á Holiday Inn með skólanum. Síðan var hann 4 sumur á Edduhótelunum, Rúgbrauðsgerðinni í 4 ár, Tilveran Hafnarfirði, rak kaffihús í Hafnarfirði, vann í Hagkaup og Fiskbúðinni okkar og síðastliðinn 14 ár hefur hann stjórnað mötuneyti TM.

 

Svona lýsir Jóhann starfi sínu:

Mötuneytisvinnan er eitthvað það erfiðasta sem ég hef unnið við, vegna þass að þar þarf maður að vera með fjölbreyttan í matseðil og öllu sem því fylgir til að ná til sem flestra, 5 daga vikunnar.

Það eru um hundrað manns að jafnaði sem snæða á hverjum degi, þannig að það tekur svolítið á að gera öllum til geðs svo vel eigi að vera og þýðir ekkert fyrir matreiðslumanninn að vera stöðugt í símanum eða tölvunni, ef hann ætlar að halda starfi sínu.

Daginn sem ég leit við var salatbarinn sem er alltaf, súpan var Sætkartöflumauksúpa og aðalrétturinn steikt Svínasíða með sykurbrúnuðum kartöflum, steiktu grænmeti og brúnni sósu.

Sætkartöflumauksúp

Sætkartöflumauksúp

Svínasíða

Svínasíða

Smakkaðist þetta alveg fantavel, enda ekki við öðru að búast við af manni sem er með 14 ár á bakinu á sama stað.

 

Hér getur að líta á matseðil fyrir eina viku:

  • Hakkabuff með lauksósu og spældu eggi, Sveppasúpa
  • Ofnbakaður steinbítur í Píri Píri, Gulrótarsúpa
  • Kjúklingabringa í Tandori með kryddgrjónum, Frönsk lauksúpa
  • Laxasteik með heimalöguðu pesto, Sætkartöflusúpa með engifer og chili
  • Nautaklúbbssamloka með bearnaise sósu og frönskum kartöflum

 

/Sverrir

twitter og instagram icon

 

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Í dag starfar Smári hjá Tónaflóði heimasíðugerð. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Auglýsingapláss

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið