Vertu memm

Starfsmannavelta

Gló kaupir Lifandi markað | Gló eldhúsið flutt í Kópavoginn

Birting:

þann

Veitingastaðurinn og verslunin Lifandi markaður í Borgartúni

„Við ætlum að Glóa þetta upp“

, segir Elías Guðmundsson, framkvæmdastjóri veitingastaðarins Gló, sem hefur keypt þá tvo veitingastaði sem út af í þrotabúi Lifandi markaðar.  Veitingastaðirnir eru í Fákafeni í Reykjavík og í Hæðasmára í Kópavogi. Kaupin voru innsigluð í síðustu viku. Elías segir stefnt á að ráða hluta starfsfólks Lifandi markaðar aftur.  Töluverðar breytingar verða gerðar á báðum stöðunum. Stefnt er á að opna verslunina í Fákafeni í lok ágúst eða í september en veitingastaðinn í Hæðasmára í september eða í október. Fyrir rekur Gló þrjá veitingastaði, tvo í Reykjavík og einn í Hafnarfirði. Með kaupunum nú bætast tveir við.

Lifandi markaður var áður í eigu sjóðsins Auður I sem er í rekstri Virðingar.  Fyrirtækið var úrskurðað gjaldþrota í byrjun mánaðar. Skiptastjóri seldi veitingastaðinn og verslunina í Borgartúni í vikubyrjun og hefur hann nú selt hina tvo, en frá þessu greinir Viðskiptablaðið.

Eldhúsið flutt í Kópavoginn

Elías segir markmiðið að opna verslun Gló í Fákafeninu þar sem verði boðið upp á ýmsar nýjungar. Þá verður þar hægt að kaupa mat og fara með. Eldhúsið verður flutt úr Engjateig í Kópavoginn og verður þar annar veitingastaður opnaður. Í eldhúsinu í Hæðarsmára verða grunnar í rétti eldaðir og undirbúnir og fluttir á hina veitingastaði Gló en þar eru jafnframt eldhús en minni í sniðum en verður í Hæðasmára.

Elías segir eldhúsið í Engjateig löngu sprungið og sé það ástæðan fyrir flutningnum. Þótt eldað verði í Kópavoginum þá sé tiltölulega mikil eldamennska á hverjum hinna veitingastaðanna.

Greint frá á vb.is

Mynd: Smári

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Í dag starfar Smári hjá Tónaflóði heimasíðugerð. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið