Vertu memm

Keppni

Bransapartý af bestu gerð – Allir velkomnir

Birting:

þann

Kokkur ársins 2016

Matseðillinn í Bransapartýinu.
3 Creative Hot Dog:
Langustine , black angus beef and foie gras.

Úrslitakeppnin í Kokkur ársins 2016 fer fram á morgun laugardaginn 13. febrúar í Flóa í Hörpu milli kl. 15 og 23.

Starfsfólk í veitingabransanum gefst tækifæri á að koma á Smurstöðina í Hörpu og skoða keppnis diskana frá keppendum í Kokkur ársins 2016.  Alvöru bransastemning, sælkera pylsur (takmarkað magn), en nóg af bjór á tilboði.  Stemningin nær hámarki klukkan 23:00 þegar Kokkur ársins 2016 verður krýndur.

Skrunið niður til að horfa á vídeó

Kokkalandsliðskvöldverðurinn – Örfá sæti laus

Fyrir þá sem vilja njóta frábærrar matarupplifunar, þá eru örfá sæti laus í Kokkalandsliðskvöldverðinn, nánari upplýsingar hérMiðar seldir á netfanginu [email protected]

Öll dagskráin

Um keppnina

Keppnin er með leynikörfu fyrirkomulagi (Mistery basket) þar sem hver keppandi skilar forrétti, aðalrétti og eftirrétti.  Keppendur skila 12 diskum (6 til dómara, 1 í myndatöku, 1 sýningardiskur, 4 í smakk út í sal)
Í dag föstudaginn 12. febrúar klukkan 16:00 fá keppendur 15 mínútur til að skoða körfu svo fá þeir 1 klst til að skila matseðli á ensku á tölvutæku formi.  Þegar matseðli hefur verið skilað fá keppendur 30 mínútur til að velja hráefnið í matseðil áður en það verður fjarlægt.

Keppendur hafa 5 klst í undirbúning fram að fyrstu skilum og svo 30 mínútur á milli rétta.  Keppendur eru ræstir með 5 mín millibili.

Myndir frá undirbúningi:

Tímalína keppninnar og Kokkalandsliðskvöldverðinum:

13:00 keppendur, dómarar-skipuleggjendur,Stöð 2 mæta í hús.

14:00 keppandi nr 1. fer í eldhús og kemur sér fyrir, keppendur svo ræstir út á 5 mín fresti.

15:00 keppandi nr 1. byrjar keppni, svo ræstir út á 5 mín fresti.

15:00-18:00 opið hús fyrir gesti/almenning að fylgjast með keppninni. KM félagar á staðnum sem gestgjafar viðburðarins og spjalli við gesti og útskýri það sem fer fram.

15:00-18:00 Kokkalandsliðið sýnilegt við vinnu/undirbúning kvöldverðarins frammi í sal.

18:00-19:00 fordrykkur fyrir kvöldverðargesti og KM félagar/kokkar blandist við hóp gesta fyrir framan keppniseldhúsin.

19:00 sest til borðs, veislustjóri Gunnar Hansson tekur sviðið. Björn Bragi forseti KM með stutt ávarp.

19:15 fyrsti réttur af fjórum frá Kokkalandsliðinu (fyrir almenna gesti, réttirnir rúlli áfram til 22:30).

20:00 Fyrsti keppnisréttur til dómara, í allt rúlla 5×3 réttir frá keppendum til 21:20. Keppendur skila 12 diskum (6 til dómara, 1 í myndatöku, 1 sýningardiskur, 4 í smakk út í sal til gesta).

21:20 síðustu skil keppnisdiska.

21:30 -23:00 Skemmtikraftar Gunnar og Matti Matt söngvari halda uppi stemningu á meðan gestir klára dinnerinn.

22:30 eftirréttur frá Kokkalandsliðinu fyrir gesti.

23:00 Verðlaunaafhending- Kokkur ársins krýndur. Ragnheiður Elín Árnadóttir Iðnaðar –og viðskiptaráðherra og Björn Bragi Bragason forseti Klúbbs matreiðslumeistara.

Allir 5 keppendur kynntir á svið og myndataka hefst og úrslitin kynnt.

23:10 + formleg dagskrá búin. Matti Matti með tónlistina, opinn bar, góð partýstemming hefst.

01:00 síðustu gestir úr húsi.

Viltu fylgjast með án þess að sitja kvöldverðinn?

Ath allt kvöldið „Chefs Corner“ á Smurstöðinni fyrir veitingabransann sem vilja fylgjast með án þess að sitja kvöldverðinn. Tilboð á mat og drykk. Opinn bar í Flóa frá 22:00 og opið fyrir alla að fylgjast með verðlaunaafhendingu, hvetjum til mætingar og krýna Kokk Ársins fyrir fullu húsi.

Tímaplan keppenda:

Kokkur ársins 2016 - Timaplan

Smakkdómarar í úrslitum eru:

  • Sven Erik Renaa frá Noregi – Yfirdómari
  • Steinn Óskar Sigurðsson
  • Jóhannes Steinn Jóhannesson
  • Viktor Örn Andrésson
  • Einar Geirsson
  • Gústav Axel Gunnlaugsson
  • Bjarni Gunnar Kristinsson
  • Sturla Birgisson
  • Elmar Kristjánsson

Eldhúsdómarar í úrslitum eru:

  • Bjarki Hilmarsson
  • Úlfar Finnbjörnsson

Regluverk og tímataka:

  • Þráinn Freyr Vigfússon
  • Lárus Gunnar Jónasson

Bransapartý – Vídeó

 

Myndir: Kokkur ársins

Vídeó: Smurstöðin

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið